Dansprufum hefur verið frestað til föstudagsins 28. apríl. Þær fara fram í World Class í Laugum kl.16.00 þann daginn. Njótið páskanna við vonum svo innilega að þið hafið það gott.
Á mánudaginn í næstu viku, þann 10. apríl fara fram prufur fyrir Sumardanshóp DWC!!! Sumardanshópurinn tekur að sér öll verkefni sem berast á borðið yfir sumarið auk þess sem hann fer í dansferð til Póllands í ágúst á FAIRPLAY DANCE CAMP!
Prufurnar fara fram í SAL 4 í World Class Laugum kl. 15:30-17:30. Við hvetjum alla nemendur okkar á aldursbilinu 13-18 ára til að mæta (þeir sem eru fæddir 1999-2003). Aðeins 12 dansarar verða teknir inn.
SKRÁNING Á DWC@WORLDCLASS.IS
Við hlökkum til að sjá sem flesta spreyta sig í prufunum!
Nú er vorönn lokið og viljum við þakka öllum nemendum skólans kærlega fyrir frábæran vetur. Við erum rosalega stolt. Vornámskeiðið hefst svo núna 2. maí og spannar 6 vikur. Skráning er hafin!!!
UM NÁMSKEIÐIÐ Kennsla fer fram í Laugum, Egilshöll, Seltjarnarnesi og Ögurhvarfi.
Námskeiðið skiptist upp í tvær lotur, hvor lota er 3 vikur.
Takmarkað pláss – enn takmarkaðra en áður.
EKKI VERÐUR KENNT Í SMÁRALIND OG MOSFELLSBÆ Ástæðan fyrir því að við bjóðum ekki uppá kennslu í Smáralind og Mosfellsbæ á vornámskeiði er að okkur langar að nemendur úr þessum stöðvum fari saman við aðra nemendur í öðrum stöðvum. Þannig kynnast þeir fleiri dönsurum og ný og meiri samkeppni myndast í tímum. Þetta er liður í því að efla nemendur okkar, styrkja félagsleg tengsl og auka árangur. Við höfum séð þetta virka mjög vel í öðrum stöðvum, um leið og nemendur færa sig í aðra stöð en þeir eru vanir taka þeir stórt stökk í framförum. Það er hrikalega mikilvægur liður í þjálfun og þroska dansara að víkka sjóndeildarhringinn og þess vegna hvetjum við nemendur í Mosfellsbæ og Smáralind til að skrá sig á námskeið í annarri stöð en þau eru vön.
VERÐ VORNÁMSKEIÐS Tvisvar sinnum í viku: 22.900
Þrisvar sinnum í viku: 29.900 – með valtíma
Fjórum sinnum í viku: 34.900 – með valtíma og masterclass
FRÍSTUNDASTYRKUR Námskeiðið uppfyllir ekki kröfur um úthlutun frístundastyrks þar sem það spannar einungis 6 vikur.
VALTÍMAR Valtímar verða aldursskiptir:
–> 7-9 ára og 10-12 ára sækja valtíma saman
–> 13-15 ára og 16+ sækja valtíma saman. Valtími fyrir 13-15 ára og 16+ fer einungis fram í Laugum.
MASTERCLASS Masterclass verður eingöngu opinn 10-12 ára framhaldshópum(nemendur sem hafa æft í 3 ár eða lengur), 13-15 ára og 16+. Hann fer einungis fram í Laugum og kennarar verða Bergdís Rún, Stella Rósenkranz og Rakel Kristins.
DWC DANCE CAMP fór fram í annað skiptið núna um helgina og gekk framar vonum. 100 nemendur sóttu námskeiðið sem fram fór í World Class Kringlunni. Kennarar í þetta skiptið voru þeir Antoine Troupe og Josh Killacky frá Los Angeles. Þeir hafa vinnu sína af því að ferðast og miðla þekkingu sinni til upprennandi dansara og seljast danstímarnir þeirra alltaf upp á heimsvísu.
Dansararnir lögðu sig alla fram og tókst svo sannarlega að ná athygli hjá báðum kennurum. Antoine og Josh fannst mikið til íslensku nemendanna koma og getustigið kom þeim á óvart. Við hjá dansskólanum vitum að sjálfsögðu hvað dansararnir okkar eru öflugir en það var frábært og hvetjandi fyrir dansarana að heyra slík ummæli frá svona þekktum dönsurum.
Það er greinilegt að metnaður hjá íslenskum dönsurum er mikill og er það hvetjandi fyrir starfsfólk skólans að halda áfram að fá svona stór nöfn til landsins.
Við viljum þakka öllum dönsurum sem mættu fyrir frábæra helgi. Takk fyrir að leggja ykkur öll fram, sýna hvoru öðru virðingu og hvetja hvert annað áfram. Framtíðin er björt, ÁFRAM ÞIÐ!!!
http://www.dansstudioworldclass.is/wp-content/uploads/2017/08/dwc-logo.png00grehttp://www.dansstudioworldclass.is/wp-content/uploads/2017/08/dwc-logo.pnggre2017-04-04 12:44:582017-08-28 21:36:38DWC DANCE CAMP haldið í annað skipti!
Nemendasýningin fór fram úr öllum okkar væntingum. Við erum alveg brjálæðislega ánægð með krakkana sem öll með tölu stóðu sig frábærlega!
Sýndar voru 6 sýningar á tveimur dögum, þann 18. og 21. mars. Ævintýrið Charlie and the Chocolate Factory var túlkað með dansi og Björn Bragi Arnarsson sá um kynningar. Poppsöngkonan HILDUR kom svo fram með nemendum í lok allra sýninga.
Gleðin skein svo sannarlega úr hverju andliti og kennararnir stóðu stoltir á hliðarlínunni af árangri krakkanna.
Okkur langar að þakka fyrir fjölda tölvupósta sem okkur bárust frá foreldrum sem hrósuðu sýningunni í hástert. Það er svo gott að heyra það frá ykkur að við séum að gera vel og að þið séuð ánægð með starfið.
Síðasti Acro tíminn fer fram á morgun, laugardaginn 25. mars, fyrir þá nemendur sem eru skráðir í valtíma. Þar af leiðandi fara engir valtímar fram í dag, föstudaginn 24. mars. Námskeiðið fer fram í fimleikasal Stjörnunnar í Ásgarði í Garðabæ. Hópnum er skipt í tvennt eins og vanalega.
Þjálfarar eru landsliðskonur í hópfimleikum en þær hafa allar keppt oftar en einu sinni fyrir Íslands hönd á erlendum stórmótum. Ábyrgðaraðili verkefnisins fyrir hönd DWC er Eva Dröfn Benjamínsdóttir, kennari, en hún átti fast sæti í landsliðinu í mörg ár áður en hún hætti keppni.
KL 14:30 – 16:00
LAUGARMOSFELLSBÆR
SELTJARNARNES
KL 16:00 – 17:30
EGILSHÖLL
SMÁRALIND
ÖGURHVARF
Við hvetjum alla til að vera tímanlega þar sem kennsla hefst á tilsettum tíma.
Fyrsti dagur nemendasýninga skólans fór frábærlega fram á laugardaginn var þegar rúmlega 350 nemendur skólans stigu á svið. Þrjár sýningar fóru fram yfir daginn og var góð stemning í húsinu allan daginn.
Við erum að rifna úr stolti yfir nemendum okkar sem sýndu hvað eftir annað hvað þeir eru að eflast mikið. Allir hafa vaxið mikið og hver og einn persónuleiki er að skína skærar með hverri dansæfingunni. Það sást greinilega á sýningunni.
Takk fyrir hlý orð í okkar garð kæru foreldrar og aðstandendur. Það hefur gefið okkur mikið að lesa falleg ummæli ykkar í tölvupóstum í tengslum við sýninguna. Við förum því full tilhlökkunar inn í annan sýningardaginn okkar á morgun.
Hér er að finna nokkrar myndir frá fyrri sýningardeginum. Allar myndir eru væntanlegar seinna í vikunni. Myndbönd á YouTube eru væntanleg í næstu viku.
http://www.dansstudioworldclass.is/wp-content/uploads/2017/08/dwc-logo.png00grehttp://www.dansstudioworldclass.is/wp-content/uploads/2017/08/dwc-logo.pnggre2017-03-20 19:31:492017-08-28 21:36:38Frábær fyrsti dagur nemendasýninga!
DWC Dance Camp fer fram í annað skiptið dagana 31. mars og 1. apríl í World Class í Kringlunni.
Antoine Troupe hefur unnið með Prince og Kehlani og Josh Killacky er einn heitasti ungi dansarinn í Los Angeles í dag.
Fjórir 90 mínútna danstímar og myndataka með dönsurunum.
DANSTÍMAR
Tveir danstímar með Josh Killacy og tveir danstímar með Antoine Troupe.
Þeir kenna nýja rútínu í hverjum danstíma
Dansarar sameinast í danssalnum og læra rútínurnar. Farið verður ítarlega í öll spor. Danstímarnir eru svokallað intermediate level eða miðlungs erfiðir. Allir dansarar eiga því eftir að ráða við sporin.
MYNDATAKA OG SPJALL
Allir dansarar fá að hitta Killacy og Troupe eftir danstíma. Einn dansari hittir þau í einu og fá tækifæri til þess að fá mynd af sér með þeim. Dansarar mega taka sínar eigin myndir á sína farsíma. Auk þess verða myndir teknar af atvinnuljósmyndara og birtar á heimasíðu skólans.
http://www.dansstudioworldclass.is/wp-content/uploads/2017/08/dwc-logo.png00grehttp://www.dansstudioworldclass.is/wp-content/uploads/2017/08/dwc-logo.pnggre2017-03-11 17:40:092017-08-16 18:22:23Danshelgi í Laugum!
Nemendasýning DWC í ár er byggð á ævintýrinu og bíómyndinni Charlie And The Chocolate Factory. Sýningin fer fram á stóra sviði Borgarleikhússins og er það Björn Bragi Arnarson sér um kynningar.
Sýningardagar eru tveir, 18. og 21. mars
LAUGARDAGURINN 18. MARS
Danshópar úr Egilshöll, Smáralind og Ögurhvarfi.
7-9 ára danshópar sýna eingöngu á sýningu 1 og 2, allir aðrir danshópar sýna á öllum sýningum.
Sýning 1 : kl.12.00
Sýning 2 : kl.13.30
Sýning 3 : kl.15.00
ÞRIÐJUDAGURINN 21. MARS
Danshópar úr Laugum, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.
7-9 ára danshópar sýna eingöngu á sýningu 1 og 2, allir aðrir danshópar sýna á öllum sýningum.