Haustönn hefst 9. september! Við kennum á 8 stöðum á önninni og bjóðum upp á dans frá 7 ára aldri og upp úr.

SKIPULAG
Markvisst og vandað dansnám hjá öllum danshópum í hverri stöð. Önnin er lotuskipt og fá allir danshópar kennara sem sérhæfa sig í ákveðnum dansstílum. Kennarar leggja ríka áherslu á uppbyggandi gagnrýni og sjálfstyrkingu. Það eiga allir að koma glaðir út úr tímum og finna fyrir innblæstri og bætingu.

  • Danssalurinn er öruggt umhverfi til tilrauna og þjálfunar.
  • Kennarar styrkja nemendur bæða tæknilega og andlega.
  • Dans er bæði líkamleg þjálfun og andleg örvun.
  • Hjá DWC er lögð jöfn áhersla á báða þætti.

KENNSLUSTAÐUR
Egilshöll, Hafnarfjörður, Laugar, Mosfellsbær, Selfoss, Seltjarnarnes, Smáralind, Ögurhvarf