DANCEOFF 2025

Við erum spennt að byrja aftur með DANCEOFF danskeppni DWC eftir margra ára hlé og mun hún fara fram sunnudaginn 16. mars í Tjarnarbíó.

Fyrsta keppnin fór fram árið 2012 þar sem troðfullt var út úr húsi og hefur verið árlegur viðburður til ársins 2018.

DANCEOFF er dansbikarkeppni þar sem sigurvegarar fá dansbikar.

MARKMIÐ
Markmiðiðmeð keppninni er að hvetja nemendur til þess að koma fram með sinn eigin dansstíl.

Keppt er í einstaklings- og hópakeppni (sami einstaklingur getur tekið þátt bæði í einstaklings- og hópakeppni)

ATRIÐI
Nemendur sýna frumsaminn dans og sjá alfarið um alla þá þætti sem snúa að því að sýna opinberlega fullbúið dansatriði. Hér er átt við alla umgjörð dansatriðisins, s.s. hugmyndavinnu, tónlist, búningahönnun og að semja og setja saman dansrútínuna. Með þessu móti öðlast nemendur aukinn þroska sem listamenn og dansarar og víkka sjóndeildarhringinn með því að dansa sína eigin sköpun og fara sínar eigin leiðir í ferlinu.

Nemendum er leyfilegt að taka þátt í báðum flokkum, þ.e. í einstaklingskeppni og svo einnig sem partur af hóp í hópakeppni. Til þess að taka þátt í hópakeppni þurfa nemendur að vera að minnsta kosti þrír saman í hóp og ekki fleiri en fimm talsins.

DANCEOFF Danskeppni 2025 fer fram sunnudaginn 16. mars.

FYRIRKOMULAG
Keppt er í einstaklings- og hópakeppni (sami einstaklingur getur tekið þátt bæði í einstaklings- og hópakeppni)

Í hópakeppni eru 3-5 manns saman í hóp

Atriði skal vera frumsamið af nemendum

LENGD ATRIÐA
Einstaklings (Solo): 75-90 sekúndur
Hópur: 90-120 sekúndur

Í hópakeppni eru 3-5 manns saman í hóp

SKRÁNING
Skráning er hafin og henni lýkur laugardaginn 1. mars.
Tónlist og öllum öðrum upplýsingum þarf að skila inn fyrir mánudaginn 10. mars.

SKRÁNINGARGJALD
3.000 kr. fyrir hvern einstakling í einstaklingskeppni (solo).
3.500 kr. fyrir hvern einstakling í hópakeppni.

Ef einstaklingur ætlar sér að taka þátt í báðum flokkum, þ.e. einstaklings- og hópakeppni, þá þarf að greiða skráningargjald í báða flokka.