Dansprufur fyrir yngri Show Case hóp fóru frábærlega fram og viljum við óska öllum til hamingju með sína frammistöðu. Stútfullur hópur af hæfileikaríkum dönsurum og er auðveldlega hægt að fullyrða að þetta var erfitt val. Hópurinn sem er tekinn inn núna hefur aldrei verið stærri eða samsettur af 17 dönsurum. Það gefur til kynna hversu erfitt var að velja úr þessum frábæra hóp þar sem upphaflega stóð til að taka aðeins 12 dansara inn.
Því miður er ekki hægt að hleypa öllum að þó svo að það væri að sjálfsögðu óskastaða.
Þeir nemendur sem komust inn í hópinn að þessu sinni náðu kóreógrafíunni og settu sinn stíl og persónuleika á túlkun sína. Það var það sem var leitast eftir í þetta skiptið og var tekið fram í upphafi dansprufanna.
Þeir nemendur sem ekki komust inn að sinni voru margir hverjir mjög nálægt því að komast inn og virkilega gaman að sjá hvað margir af dönsurunum hafa náð miklum árangri á milli dansprufanna sem fóru fram núna og þeim sem fóru fram fyrir jólasýninguna í haust. Því miður þarf að draga línuna einhvers staðar og við hvetjum alla þá flottu dansara sem ekki komust inn í þetta skiptið að halda áfram að æfa sig og ná þannig árangri.
Þeir nemendur sem komust inn í þetta skiptið og taka þátt í Show Case atriði á nemendasýningu eru:
Andrea Líf Ívarsdóttir
Edda Sóldís Hjaltadóttir
Embla María Jóhannesdóttir
Guðrún Jane Gunnarsdóttir
Hafdís Eyja Vésteinsdóttir
Iðunn Ingvarsdóttir
Kaja Sól Lárudóttir
Katrín Emma Óskarsdóttir
Kolfinna Björt Þórðardóttir
Kristín María Hauksdóttir
Kristjana Rakel Eyþórsdóttir
Lovísa Una Bryngeirsdóttir
Margrét Dýrley Guðmundsdóttir
Rósa Guðbjörg Guðmundsdóttir
Snædís Lilja Pétursdóttir
Sóley Bára Þórunnardóttir
Sóley Jóhannesdóttir
Telma Sif Sölvadóttir
Til allra sem mættu í prufurnar, til hamingju með ykkur.
Við erum stolt af ykkur 🙂